Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð hefur átt farsælt samstarf við ýmsa aðila á Íslandi síðan félagið var stofnað. Félagið hefur lagt hönd á plóg varðandi nám sem boðið hefur verið upp á í fjölskyldumeðferð. Einnig hefur félagið fengið til sín beiðnir um umsagnir frá stjórnvöldum um ýmis lög er varða velferð fjölskyldna.
Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð er ávallt tilbúið í samstarf um það hvernig hægt er að hlúa betur að fjölskyldum á Íslandi og vinna að því að gera fjölskyldumeðferð aðgengilega fyrir almenning.
Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð er þátttakandi í norrænu samstarfi.